Pantað & Sótt þjónusta er einungis í boði við brottför
Aðgengis yfirlýsing
Síðast uppfært: 10. júní 2025
Við hjá Ísland Duty Free leggjum við mikla áherslu á að tryggja að stafrænir miðlar okkar séu aðgengilegir fyrir alla notendur, þar á meðal einstaklinga með fjölbreyttar aðgengisþarfir. Við stefnum að því að bjóða upp á upplifun sem tekur mið af öllum með því að fylgja bestu starfsvenjum og aðgengisstöðlum.
Skuldbinding okkar um aðgengi
Við stefnum að því að uppfylla Web Content Accessibility Guidelines (WCAG) 2.1 Level AA, til að auka aðgengi fyrir alla notendur, þar á meðal þá sem nota hjálpartæki eins og skjálesara, stækkunarbúnað og raddstýringu.
Við yfirförum reglulega vefsíðuna okkar til að greina og fjarlægja hindranir í aðgengi og höldum stöðugt áfram að bæta notendaupplifunina.
Aðgengiseiginleikar – vefur
Við höfum innleitt eftirfarandi eiginleika til að gera vefsíðuna okkar aðgengilegri:
● Lyklaborðsleiðsögn: Notendur geta flett um síðuna eingöngu með lyklaborði.
● Samhæfni við skjálesara: Vefsíðan er hönnuð til að virka vel með skjálesurum á borð við VoiceOver, NVDA og JAWS.
● Litagildi og birtuskil: Við tryggjum nægileg birtuskil milli texta og bakgrunns.
● Varatexti: Myndir og annað efni sem ekki er texti eru með lýsandi varatexta.
● Stækkanlegur texti: Notendur geta stækkað texta án þess að virkni tapist.
● Lýsandi hnappar og tenglar: Hnappar, tenglar og form eru skýrlega merkt.
● Villumelding og aðstoð: Villur í innsláttareitum eru skýrt tilkynntar.
Stöðugar úrbætur
Við vinnum stöðugt að því að bæta aðgengi vefsíðunnar. Sem hluti af þeirri vinnu:
● Framkvæmum við reglubundnar aðgengisúttektir.
● Leitum við eftir ábendingum frá notendum, þar á meðal einstaklingum með fjölbreyttar og mismunandi aðgengisþarfir.
● Uppfærum við efni og eiginleika í takt við þróun aðgengisstaðla.
Þekkt vandamál
Við vitum að sum svæði vefsíðunnar þurfa frekari úrbætur. Við erum þegar að vinna að:
• Alt‑textum fyrir „teasers“ og lokafrágangi á aðgengi forsíðu (22. júlí)
• Lyklaborðsleiðsögn – möguleiki á að hoppa beint í aðalefni (22. júlí)
• Pöntunarferli (checkout): Endurhönnun og aðgengi (október)
• Skráningarform: Endurhönnun og aðgengi (október)
• Notandaaðgangur: Endurhönnun og aðgengi (desember)
• Efnissíður (t.d. greiðslur): (desember)
Aðgengiseiginleikar – app
Við höfum innleitt eftirfarandi eiginleika til að gera appið okkar aðgengilegra:
● Samhæfni við skjálesara: Appið er hannað til að virka vel með skjálesurum.
● Lýsandi hnappar og tenglar: Hnappar, tenglar og form eru greinilega merkt.
● Villumelding og aðstoð: Villur í innsláttareitum eru skýrt tilkynntar.
Stöðugar úrbætur í appinu
Við vinnum stöðugt að því að bæta aðgengi appsins. Sem hluti af þeirri vinnu:
● Framkvæmum við reglubundnar aðgengisúttektir.
● Leitum við eftir ábendingum frá notendum, þar á meðal einstaklingum með fjölbreyttar aðgengisþarfir.
● Uppfærum efni og eiginleika til að uppfylla nýja staðla.
Þekkt vandamál í appi
Við gerum okkur grein fyrir að sum svæði appsins þurfa frekari úrbætur. Við erum að vinna að því að leysa:
• Birtuskil milli texta og bakgrunns
• Stækkanlegur texti án skerðingar á virkni
• Pöntunarferli (checkout): Endurhönnun og aðgengi
• Skráningarform: Endurhönnun og aðgengi
• Notandaaðgangur: Endurhönnun og aðgengi
• Efnissíður (t.d. greiðslur)