Algengar spurningar um Ísland Duty Free
Samvkæmt tollalögum á Íslandi getur þú verslað í samæmi við þau í brottfarar- og komuverslun. Þessar reglur geta verið mismunandi eftir löndum sem þú ferðast til. Þú getur einnig skoðað síuna okkar um
tollkvóta.
Verslanir okkar á Keflavíkurflugvelli eru opnar alla daga, allan sólarhringinn í takt við flugáætlun.
Hér finnur þú yfirlitssíðu með ítarlegum upplýsingum um verslanir okkar á flugvellinum.
Við tökum við reiðufé í íslenskum krónum. Við tökum einnig við reiðufé í breskum pundum, evrum og bandaríkjadölum en aðeins seðlum, ekki mynt.
Nei, vöruúrvalið er mismunandi milli verslana.
Allar vörur í verslunum okkar fara í gegnum viðeigandi ferli samkvæmt reglum íslenskra tollayfirvalda áður en þær fara í sölu. Það er því tryggt að þær eru upprunalegar og ekta.
Þú getur tekið vökva sem þú kaupir með þér í tengiflug í innsigluðum poka. Pokann færðu hjá okkur við greiðslu á vörunum. Hins vegar geta verið aðrar reglur eða takmarkanir á endanlegum áfangastað þar sem vökvi gæti verið haldlagður jafnvel þó hann sé í innsigluðum poka. Þar sem reglur um samþykki vökva eru mismunandi milli landa mælum við með að þú hafir þetta í huga við kaup og kannir reglur á endanlegum áfangastað.
Já. Samkævmt lögum um verslanir sem selja tollskyldan varning að sá sem kaupir sé sami einstaklingur og er á brottfararspjaldinu.
Verslanir okkar eru staðsettar á svæðum þar sem þú þarft að fara í gegnum vegabréfaeftirlit. Samkvæmt reglum tollayfirvalda þarf að sýna brottfararspjald til að hægt sé að virkja kassakerfið og ljúka kaupum.
Já það er leyfilegt, ef barnið er farþegi eins og þú. Við viljum minna þig á að það er 18 ára aldurstakmark á kaupum á tóbaki og 20 ára aldurstakmark á kaupum á áfengi.
Til að mega versla í verslunum okkar þarftu að vera farþegi á leið í millilandaflug.
Vegna mikillar veltu og fjölbreytts vöruúrvals í verslunum okkar erum við ekki með útprentaðan vörulista.
Sumir geta verið viðkvæmir fyrir ákveðnum efnum sem finnast í vörunum okkar.
Ef þetta varðar snyrtivörur mælum við með að þú prófir prufuvörurnar í verslunum okkar áður en þú kaupir þær.
Ef þú hefur áhuga á drykkjum, sælgæti eða matvörum, þá er best að skoða innihaldslýsinguna í netverslun okkar eða á umbúðunum þegar þú ert í versluninni okkar.
Samkvæmt gildandi lögum og reglum getum við því miður ekki veitt upplýsingar um tóbaksvörur.